Samlífs Samtaka líffrćđikennara Samlíf –samtök líffrćđikennara
FRÉTTABRÉF
Ábm. Jóhann Guđjónsson
Janúar 2005
Ađalfundur Samlífs fyrir áriđ 2004
verđur haldinn á Lćkjarbrekku viđ Lćkjargötu í Reykjavík
laugardaginn 15. janúar 2005, kl 11.30
Dagskrá: Venjuleg ađalfundarstörf
Hvernig er hćgt ađ efla starfsemi félagsins?
Samlíf býđur til hádegisverđar
Ţeir sem óska ađ vera međ eru beđnir ađ skrá sig á johann@flensborg.is eđa í síma fyrir 13. jan 2005. (vegna hádegisverđarins)
Árskýrsla Samlífs 2004.
A. Ađalfundur og stjórn
. Ađalfundur Samlífs var haldinn á Lćkjarbrekku í Reykjavík 31. janúar 2004. Dagskrá var samkvćmt lögum samtakanna. Ađ venju var ekki vel mćtt, ađeins ţrettán félagsmenn komu á fundinn.
1. Skýrsla formanns. Skýrslan hafđi veriđ send út í fréttabréfi svo hún var ekki lesin upp Formađur fjallađi um helstu verkefni ársins 2003. Áberandi var ađ sókn félagsmanna á námskeiđ var nánast engin svo ţau urđu ađeins eitt, lífeđlisfrćđi, áriđ 2003. Ţó nokkur vinna var áriđ 2003 viđ inntökupróf viđ Lćknadeild Háskóla Íslands. Globe og Globe Arctic verkefnin héldu áfram ţetta áriđ. Viđ héldum stóra ráđstefnu í nóvember ţar sem viđ fenginn var amerískur fyrirlesari. Annars er vitnađ í fréttabrefiđ sem sent var út fyrir ári.
2. Umrćđa um ársskýrsluna. Ţađ kom fram ađ félagarnir vildu efla heimasíđuna http://www.ismennt.is/vefir/samlif, t.d. međ ţví ađ menn sendi vefstjóra bestu krćkjur sínar auk annars efnis sem ţeir eru tilbúnir til ađ deila međ öđrum.
3. Mikiđ var rćtt um kennslubćkur í framhaldsskólum. Margir skólar hafa valiđ ađ nota erlendar bćkur sem grunn líffrćđikennslu á náttúrufrćđibrautum. Nú er ađ koma út erfđafrćđibók eftir Mörtu Konráđs og fleiri og vonandi kemur vistfrćđibók eftir undirritađan og Rut Kristinsdóttur áđur en langt líđur.
4. Nordisk Biologisk Rad: Fundur verđur í Finnlandi. Björgvin Leifsson og Inga Hrund Gunnarsdóttir gáfu sig fram til ţátttöku.
5. Fjárhagur: Fjárhagur félagsins er ágćtur. Mikil velta er m.a. vegna spurninga Lćknadeildar, Globe og Globe Arctic,.Meginkostnađur var vegna afmćlisráđstefnu Samlífs ţar sem viđ fengum bandarískan fyrirlesara, en ţeir sem sóttu fyrirlestra hans voru ánćgđir.
6. Stjórnarkjör: Skúli Ţór Magnússon og Kristján Sigfússon gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnarsetu. Inga Hrund Gunnarsdóttir, MR, og Sigurlína Gísladóttir, Hlíđaskóla, voru einróma kosnar í ţeirra stađ.
7. Lagabreytingar: Engar höfđu borist fyrir fundinn.
8. Önnur mál: Stytting framhaldsskólans: Menn óttast ađ ţetta leiđi til minni ţekkingar og skilnings á raungreinum innan framhldskólans.
B. NBR ráđstefnan í Finnlandi 12.-14.3 2004 Skýrsla fulltrúa Samlífs, Björgvins R. Leifssonar (Útdráttur)
Lagt var af stađ til Finnlands kl. 7:45 ţann 11.3. Lent var á Vantaa flugvelli um kl. 15 ađ stađartíma og var komiđ í hótel Helka kl. 17. Kynningarfundurinn hófst kl. 6 í höfuđstöđvum finnsku líffrćđikennarasamtakanna (BMOL) og komst ég ţá ađ ţví ađ allir hinir NBR fulltrúarnir voru konur, en norska fulltrúa vantađi. Ţannig var 1 frá Íslandi, 2 frá Danmörku og 2 frá Svíţjóđ auk finnsku fulltrúanna, sem einnig voru tveir. Ţađ komu ţó fleiri Finnar á fundinn. Setiđ var til kl. 10 og reynt ađ rćđa um daginn og veginn en eins og kennara er siđur snerist umrćđan alltaf ađ starfinu. Eldsnemma á laugardagsmorgni var sest upp í rútu til Kotka. Ađ lokinni innritun á hótel Sokos var fariđ á ráđstefnustađ. Ţar vorum viđ véluđ á fyrirlestur á finnsku en okkar fundur byrjađi ekki fyrr en eftir hádegi.
Í anddyri skólans voru kynningar á ýmsu líffrćđitengdu kennsluefni, allt frá bókum og bćklingum til smásjáa og annarra rannsóknaáhalda.
Á NBR fundinum byrjuđum viđ á ađ skiptast á nafnspjöldum og tókum saman netföng og heimasíđur samtakanna í hverju landi. Rćtt var um ađ vegna veikinda norska tengiliđarins vćri ekkert samband viđ Noreg og ţví vćri nauđsynlegt ađ hafa tvo tengiliđi í hverju landi. Benti ég strax á Jóhann Guđjónsson og sjálfan mig.
Umrćđan snerist um eftirfarandi:
1. Ađ koma á góđu tengiliđakerfi.
2. Stađa líffrćđikennslunnar í hverju landi kynnt. Kom ţá ýmislegt sameiginlegt í ljós:
a) Öll löndin hafa nýlega undirgengist námsskrárbreytingar eđa ţćr standa fyrir dyrum. Sums stađar, t.d. í Finnlandi hefur ţetta heppnast nokkuđ vel en eins og á Íslandi virkar ţetta ekki sem skyldi í öllum skólum, t.d. mjög litlum skólum.
b) Allir kvörtuđu yfir lélegri undirbúningi nemenda á grunnskólastigi, sérstaklega í stćrđfrćđi en einnig almennt í raungreinum. Allir virđast horfast í augu viđ ţađ vandamál ađ ć fćrri raungreinamenntađir grunnskólakennarar fást til starfa og sums stađar, t.d. í Danmörku, eru grunnskólakennaralaunin svo lág ađ fólk hrökklast úr starfi.
c) Áhugi var á ađ halda nćstu NBR ráđstefnu á Íslandi. Sá ég ekkert ţví til fyrirstöđu og benti á Jóhann í sambandi viđ skipulagningu.
3. Erlent samstarf af ýmsum toga.
a) Comenius samstarf. Áhugi á samstarfi milli finnsks og íslensks skóla.
b) EMBO (European Molecular Biology Organization)
Á fundinum dreifđu fulltrúar bćklingum sem samtökin í hverju landi gefa út, sagđi ég ţeim ađ lítiđ vćri um útgáfu hjá okkur, enda miklu minni samtök.
Ađ fundi loknum var fariđ í Maritime, sjávardýrasafn í Kotka. Kvöldverđur var snćddur á hótelinu í bođi finnsku samtakanna
C. Globe verkefniđ: Viđ héldum áfram međ ţetta stóra alţjóđlega umhverfisverkefni. Sex íslenskir skólar sendu skýrslur sínar inn á vefinn, globe.gov Ţó betur mćtti vera eru Íslendingar međal bestu (miđađ viđ höfđatölu) í skilum á netiđ. Undiritađur var fenginn sem kennari á vikunámskeiđ í Druskinninkai í Litháen.í september Ţar reyndi á kennslureynslu ţví mćlitćkin komu ekki fyrr en daginn sem ég fór. Ég ţurfti ađ fara í byggingavörubúđir til ađ kaupa plastfötur, snćri, hitamćla, sprayflöskur o.s.frv. bara til ađ geta gert eitthvađ í áttina viđ sem ćtlađ var. Undirritađur sótti auk ţess ađalfund Globe international í Boulder, Colorado í júlí og ađalfund Globe Evrópu í Prag í byrjun október.
Í tengslum viđ Globe verkefniđ tókum viđ ţátt í Norđurslóđaverkefni Globe (Globe Arctic) en ţví lauk á ţessu ári međ fundi á Lofóten í Noregi.
D. Námskeiđ:
Viđ héldum ekkert námskeiđ á ţessu ári. Erfitt hefur veriđ ađ halda námskeiđ hve fáir félagsmenn hafa sótt ţau. Ţarna geta nokkrir ţćttir veriđ sem valda. Fyrstan ţeirra vil ég telja ađ umbun í launum fyrir sótt námskeiđ var afnumin í síđasta kjarasamningi í ársbyrjun 2001. Síđan ţá hafa námskeiđ okkar veriđ fá og alltaf međ lágmark ţátttakenda. Skil grunnskólans og framhaldsskólans eru önnur ástćđa. Forráđamenn sveitarfélaga vilja, eđlilega, ađ námskeiđ ţeirra nýtist sem flestum kennurum og séu ţví ekki eins sérhćf eins og námskeiđ líffrćđisamtaka hljóta ađ vera Nú í ţriđja lagi eru námskeiđin okkar ekki nógu áhugaverđ. Nokkur líffrćđisamtök hafa komiđ til okkar og bođiđ námskeiđ án kostnađar, ţ.e.a.s. međ fyrirtaks fyrirlesara og vonandi getum viđ bođiđ upp á nokkur slík á árinu 2005. Ţar er fyrst námskeiđ um erfđabreyttar lífverur sem verđur 11. mars. Ţetta er málefni sem allir verđa ađ vita eitthvađ um og ţarna gefst okkur tćkifćri til ađ heyra sérfrćđinga tjá sig um máliđ og spurja ţá. Líka eru óskir um námskeiđ fyrir kennara í sameindalíffrćđi sem vonandi verđur hćgt ađ bjóđa upp á á haustmánuđum 2005. Samlíf hefur alltaf styrkt kennara utan af landi til ađ sćkja slík námskeiđ.
Okkar námskeiđ í sumar er umhverfisfrćđinámskeiđ sem ćtlunin er ađ halda í byrjun júní á Norđurlandi, eins og ţau voru fyrir nokkrum árum bćđi međ grunn- og framhaldsskólakennurum. Viđ höfum vilyrđi fyrir ţví ađ ţetta eigi ekki ađ ţurfa ađ kosta neinn annađ en tímann sem í námskeiđiđ.
E. Ráđstefna Líffrćđifélags Íslands 18. – 20. nóv. 2004.
Stjórn Samtakanna ákvađ á fundi sínum 19.október 2004 ađ styrkja afmćlisráđstefnu Líffrćđifélagsins um 100.000.- og jafnframt ađ fá Endurmenntun H.Í. til ađ greiđa ţátttökugjöld félagsmanna. Líka buđu samtökin félagsmönnum til hádegisverđar á seinni degi ráđstefnunnar( ađeins 11 sóttu ţann málsverđ).
Ég sem formađur ţessara samtaka verđ ađ lýsa yfir vonbrigđum mínum viđ viđbrögđum félagsmanna viđ bođi á ţessa ráđstefnu. Ţarna komu fram allir helstu frćđimenn Íslendinga innan líffrćđinnar, bćđi innan sameinda- og umhverfisfrćđi (og annarra greina).
F. Fjárhagur: Samtökin standa fjárhagslega nokkuđ vel ţrátt kostnađarsama ţátttöku okkar í ráđstefnum, bćđi líffrćđifélagsins og okkar eigin á fyrra ári. Lokaniđurstađa reikningsins er jákvćđ og ţar fyrir utan eiga samtökin varasjóđ í hlutabréfum og á bankareikningi
G. Stjórnin: Stjórnina skipa nú Jóhann Guđjónsson, Flensborg, formađur, Sigurlaug Kristmannsdóttir, F.Á, varaformađur og stjórnandi vefsíđu, Eva Benediktisdóttir H.Í ritari, Inga Hrund Gunarsdóttir M.R. gjaldkeri og Sigurlína Gísladóttir, Seljaskóla međstjórnandi. Ekki hafa veriđ kosnir varamenn í stjórnina í nokkur ár en nú viljum viđ bćta ţar úr. Ţví viljum viđ biđja áhugamenn til ađ hafa samband viđ okkur ef ţeir eru tilbúnir til ađ koma móts viđ stjórnina og vinna međ okkur ađ framhaldi líffrćđikennslu á landinu.
Ef enginn viđtakandi finnst, vinsamlegast endursendiđ Fréttabréfiđ til
Samtaka líffrćđikennara, Pósthólf 8282, 128 Reykjavík.