|
|
janúar
2009
Aðalfundur Samlífs -
samtaka líffræðikennara fyrir árið 2009
verður haldinn á veitingahúsinu
Lækjarbrekku,
Lækjargötu í Reykjavík
laugardaginn 21. feb. 2009, kl 11.00.
Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf,
umræður
Samlíf býður til
hádegisverðar
Þeir
sem óska að vera með
(allir líffræðikennarar meira en velkomnir) eru beðnir að senda
formanni boð í síma 5552119/8972119 eða
á netfangið: johann@flensborg.is fyrir
16. Feb. 2009. (vegna fjölda í matnum)
1.
Skýrsla formanns
Líffræðin hefur eins og aðrar raungreinar lent í niðurskurði sem fag á öllum skólastigum á liðnum árum. Fyrir tíu árum voru raungreinar að lágmarki 12 einingar af stúdentsprófi annarra en náttúrubrautarnema en nú stefnir allt í að þær verði aðeins 6. Yfirmenn skólamála á Íslandi virðast ekki átta sig á því fyrir hvað raunvísindi standa. Að þau séu grunnur að okkar menningu og velsæld. Við sem kennum raunvísindi eigum undir högg að sækja, kennsla okkar er dýrari en að kenna sögu eða önnur bókleg fög, vegna þess að við verðum að hafa eitthvað verklegt, skoða í smásjá, fara út í feltið, gera tilraunir o.s.frv. Þennan nauðsynlega þátt raungreinakennslu virðast yfirmenn okkar ekki skilja og því skulum við vinna með svo stóra hópa að nemendur komist ekki að í tilraunatímum, skoðunarferðir má ekki borga o.s.frv. Ég tel að fækkun nemenda í raungreinanám í háskólum sé skýrt dæmi um þessa öfugþróun. Hvernig eigum við að bregðast við? Hvað getum við gert?
2. Aðalfundur Samlífs
2. febrúar 2008
Aðalfundur Samlífs var haldinn 2. febrúar 2008 og þar var
kosin stjórn
samtakanna. Hana skipa: Arnar Pálsson HÍ, Ester Ýr Jónsdóttir FSu,
Jóhann
Guðjónsson Flb, Ólafur Örn Pálmarsson Laugalækjarskóla, Soffía Arnþórsdóttir, Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum. Varamenn eru Eiríkur Jensson FB
og Marta Ólafsdóttir FG
Á aðalfundinum voru líka samþykktar breytingar á lögum
samtakanna. Helstu
breytingarnar voru að ekki skal lengur ákvarða í lögum af hvaða
skólastigi
stjórnarmenn eru. Aðalfund skal halda í upphafi árs og verði félagið
gert upp
skulu eignir þess renna til Kennarasambands Íslands
3.
Námskeið Samlífs 2008: Vistfræði
Vestmannaeyja
Ætlunin var að halda árlelegt sumarnámskeið Samlífs í
Vestmannaeyjum. Skoða
og kynnast náttúru Eyjanna undir góðri leiðsögn. Við vorum búinn að fá
góða
leiðsögumenn, panta gistingu, tryggja fjármagn, en svo létu kennarar
ekki sjá
sig. Niðurstaðan var sú að námskeiðinu varð að aflýsa. Hér gildir eins
og
alltaf að fjöldinn sem skráður er á lokadegi ræður hvert framhaldið
verður,
ekki einhverjir sem koma seinna og vilja vera með. Þetta var
leiðinlegt, en ég
sem framkvæmdastjóri námskeiðsins, gat ekki beðið hótel, fyrirlesara og
aðra að
bíða; það hljóti að koma fleiri.
4. Námskeiðið
næsta sumar: Fimmtudaginn 18. júni-laugardagsins 20. júní.
Námskeið Samlífs næsta sumar verður um landspendýr
á Íslandi. Þetta er hugsað sem þriggja daga námskeið, þannig að á fyrsta degi verði fyrirlestrar, sömuleiðis
fyrir hádegi annars dags, en svo verði farið í skoðunarferð og augum
beint að
kanínum í Öskjuhlið. Þriðji dagurinn verði svo notaður til að búa til
nemendaverkefni um landspendýrin. Verkefnin verði svo sett á
heimasíðuna
okkar www.lifkennari.is þar sem þau verða öllum tiltæk.
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á hvaða skólastigi sem þeir
eru.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2009 og hve margir hafa sótt um þá ræðst
hvort
námskeiðið verður haldið eður ei. Hægt
er að sækja um námskeiðið í netfang formanns johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands. Við höfum ekki
fengið endanlega
ákvörðun um styrk frá Endurmenntun en vonandi fáum við það sem um var
beðið.
5. Heimasíðan okkar www.lifkennari.is
Við höfum nú í nokkur ár verið með heimasíðu. Sigurlaug
Kristmannsdóttir
setti hana upp og hún er mjög aðgengileg. Nú hefur Ester Ýr Jónsdóttir
við FSu
á Selfossi tekið við. Þarna eru aðgengilegar upplýsingar um alla
starfsemi
félagsins og ýmiss verkefni sem henta öllum skólastigunum. Það mættu
fleiri
sækja síðuna heim. Þarna er eftir mörgu að slægjast.
6. Saga Samlífs
Samlíf-samtök líffræðikennara voru stofnuð 23. september
1983. Fyrsti
formaður var Guðrún Svansdóttir. Síðan hafa meira en tíu manns verið
formenn
samtakanna. Núverandi stjórn er að reyna að safna upplýsingum um
starfsemi
félagsins í gegnum þessi 25 ár, en mikið af gögnum og fundargerðum
virðast vera
tapað. Ef einhverjir félagsmenn eiga myndir eða sögur
frá þessum námskeiðumog fundum, endilega
sendið okkur, johann@flensborg.is eða esteryr@gmail.com Við erum að búa til myndaalbúm á heimasíðunni
okkar www.lifkennari.is Það eru komnar nokkrar myndir frá námskeiðum
á Alviðru 1990, Stóru-Tjörnum 1989, Hallormsstað 1988 auk nýrri
námskeiða frá
2006 og 2007 en það vantar fleiri.
Sérstaklega sakna ég mynda frá Ströndum 1996, Hólum í Hjaltadal 1997
(Drangey)
og Laugum í Reykjadal.
7. Umsagnir um styrki til
námsefnisgerðar
Eitt af skylduverkum Samlífs er að gefa álit á umsóknum sem
menntamálaráðuneytinu berast um styrki til námsefnisgerðar. Nú bárust
okkur fjórar slíkar umsóknir. Nokkrar
þeirra voru svo illa unnar og óljósar að við treystum okkur ekki til að
mæla
með þeim. Ein var þó afar áhugaverð, um vistfræði Íslands, sem við
gáfum
okkar fyllstu meðmæli. Eigi veit ég svo
hvað varð um þessar umsóknir eða hverjir fengu styrki.
8. Erlend samskipti
Nordisk Biologisk Råd , Samtök líffræðikennara á Norðurlöndunum, hélt fund í Stokkhólmi í byrjun september. Af okkar hálfu sóttu hann Ólafur Örn Pálmarsson og Soffía Arnþórsdóttir. Að þeirra sögn var fundurinn áhugaverður og við ættum að efla samstarfið. Hér eru nokkrar heimasíður norrænu samtakanna en þar er margt að finna sem við getum nýtt okkur í okkar starfi; www.emu.dk dönsk fagfélög; www.bio.no norskt fagfélag; www.biologforbundet.dk fagfélag líffræðikennara í Danmörku.
9. Ár
Darwins 2009.
Í seinni hluta ágúst fór ég á fund áhugasamtaka um arfleifð Darwins, en á árinu 2009 eru tvö merkisafmæli hans. 200 frá því hann fæddist og 150 ár frá útkomu bókar hans um uppruna tegundanna. Samlíf ákvað ásamt Hinu íslenska náttúrfræðifélagi að vera með í að halda uppá þessi merku tímamót. Við stöndum að ritgerðarsamkeppni framhaldsskólanema um Darwin og þróunarkenningu hans og veitum verðlaun fyrir bestu ritgerðirnar.
10.
Spurningar fyrir Læknadeild HÍ og umsagnir
um námsefni
Samlíf fékk ósk um að búa til 80 spurningar fyrir Læknadeild HÍ fyrir inntökuprófið síðastliðið vor, enda líffræði eitt af megin viðfangsefnum prófsins. Við vorum 5 sem sömdum þessar spurningar, en þar mega gjarnan koma fleiri að. Mér finnst óþægilegt að vita ekki hvaða spurningar lentu á endanum á sjálfu prófinu og líka hvernig þær gengu. Mér finnst að Læknadeildin eigi að taka saman árangur spurninganna og senda okkur. Heyrst hefur að hæsta skor svarenda sé 70% sem segir að prófið er of erfitt og því nánast tilviljun hvort nemendur sem eru á mörkunum séu þeir sem deildin vill fá.
11. Fjárhagur
Fjárhagur samtakanna er traustur, þrátt fyrir alla kreppu. Við rukkum ekki árgjald (það var of dýrt) en lifum á styrkjum. Við eigum nokkra peninga í hávaxtareikningum, sem hægt er að grípa til ef illa viðrar. Við höfum styrkt málstofur um náttúrufræðikennslu, ritgerðir um þróunarkenningu Darwins, námskeiðin okkar og námskeið um erfðafræði á liðnum árum. Reikningar verða kynntir á aðalfundi.
Ef
viðtakandi finnst ekki, vinsamlegast endursendið fréttabréfið:
Samlíf - Samtök
líffræðikennara
Pósthólf 8282
128 Reykjavík