Samlíf - logo
Samlíf    Samtök líffræðikennara
Samlíf
Forsíða
Fréttir
Lög félagsins
Fréttabréf
Um félagið
Ýmislegt
Námskeið
Ráðstefna
Myndir
Krækjur
Orðalistar
Námsefni

Gerast félagi
Fréttir
Námskeið um lífeðlisfræði mannsins, 14. - 16. júní 2011
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á grunn- og framhaldsskólastigi.  Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.  Umsóknarfrestur er til 1. júní 2011.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang formanns, esteryr (hjá) gmail.com eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Arfleifð Darwins
Arnar Pálsson færði Samlíf bókina Arfleifð Darwins formlega að gjöf á aðalfundi félagsins en Samlíf styrkti útgáfu bókarinnar.  Yfirlit yfir kafla bókarinnar má m.a. sjá hér og má nálgast upplýsingar um viðburði tengda bókinni á Facebook síðu hennar.

Stjórnin situr áfram
Á aðalfundi Samlífs sem haldinn var laugardaginn 26. febrúar voru allir stjórnarmenn félagsins endurkjörnir og haldast hlutverkaskipti óbreytt þetta árið. 
Um hlutverkaskipan stjórnarinnar má lesa hér.

Arfleifð Darwins - Námskeið í boði Endurmenntunar HÍ
Árið 2009 voru 200 ár liðin frá fæðingu Charles R. Darwins og 150 ár síðan bók hans “Uppruni tegundanna” kom út. Af því tilefni rituðu íslenskir vísindamenn bókina “Arfleifð Darwins”. Á námskeiðinu verður farið í efni þeirrar bókar og ýmsar spurningar ræddar, s.s.: Hvers vegna stunda lífverur kynæxlun? Hver er uppruni lífsins? Hvað eru lifandi steingervingar? Hvernig þróuðust finkurnar á Galapagoseyjum? Hvernig tóku Íslendingar þróunarkenningunni? Hvernig þróast fórnfýsi? Veldur þróun sjúkdómum? Hver eru tengsl þróunarfræði, hugvísinda og trúarbragða? Eru nýjar tegundir að myndast á Íslandi?
Skráningarfrestur er til 2. mars 2011.  Sjá nánar um námskeiðið hér.


Aðalfundur Samlífs

Boðað er til aðalfundar Samlífs laugardaginn 26. febrúar kl.11:00.  Fundurinn fer fram á Litlubrekku bak við veitingahúsið Lækjarbrekku, Lækjargötu í Reykjavík.  Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.  Samlíf býður til hádegisverðar, þeir sem óska að vera með (allir líffræðikennarar eru meira en velkomnir) eru beðnir um að senda formanni boð á netfangið:  esteryr(hjá)gmail.com fyrir 20. febrúar 2011 (vegna fjölda í matnum).

Erfðamengjaöldin: Framfarir í líffræði og mannerfðafræði“
Dagana 7. og 8. janúar 2011 verður haldin ráðstefna á vegum Samlífs sem ber yfirskriftina „Erfðamengjaöldin: Framfarir í líffræði og mannerfðafræði“.  Ráðstefnan verður samtvinnuð námskeiði og verður haldin í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands.  Farið verður yfir helstu framfarir í erfðafræði og skyldum greinum.  Kennarar eru sérfræðingar við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, Kerfislíffræðisetur HÍ, Landspítala og Íslenska erfðagreiningu.  Sjá nánar um viðburðinn hér.

Námskeið um fugla í nágrenni okkar, 18. - 20. júní 2010
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á grunn- og framhaldsskólastigi.  Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.  Umsóknarfrestur er til 22. maí 2010.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang formanns, johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Ný stjórn Samlífs kosin
Á aðalfundi Samlífs laugardaginn 27. febrúar 2010 voru allir stjórnarmenn endurkjörnir en breyting varð á hlutverkaskipan.  Jóhann Guðjónsson lét af formennsku eftir að hafa gengt henni í 11 ár en hann situr áfram í stjórn.  Ester Ýr Jónsdóttir tók við formennsku félagsins.  Aðrir í stjórn Samlífs eru Rúna Björk Smáradóttir, Ólafur Örn Pálmarsson og Arnar Pálsson.  Um hlutverkaskipan stjórnarinnar má lesa hér.

Aðalfundur Samlífs árið 2010
Aðalfundur Samtaka líffræðikennara verður haldinn á veitingahúsinu Lækjarbrekku, Lækjargötu í Reykjavík, laugardaginn 27. febrúar kl. 11:00.  Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf.  Ólafur Halldórsson kynnir nýja bók í almennri líffræði.  Samlíf býður til hádegisverðar.  Þeir sem óska að vera með, allir líffræðikennarar eru meira en velkomnir, eru beðnir um að senda formanni boð í síma 555 2119 / 897 2119 eða á netfangið johann@flensborg.is fyrir 23. febrúar 2010 (vegna fjölda í matnum).

Námskeið Samlífs sumarið 2010
Við lok sumarnámskeiðs 2009 var sett saman nefnd sem sjá á um skipulagningu sumarnámskeiðs Samlífs árið 2010.  Ýmsar hugmyndir komu að umfjöllunarefni næsta námskeiðs og voru þær eftirfarandi; Fuglar, Fiskar, Sjálfbærni, Garðyrkja, Verklegar æfingar í lífeðlisfræði, Vatnalíf, Vatnajökulsþjóðgarður, Orka - orkubúskapur, Frumverur/örverur. Áætlað er að halda námskeiðið á svipuðum tíma að ári, þ.e. eftir miðjan júní en lengd þess er óákveðin.  Nefndina skipa þau Ólafur Einarsson, Svana Bjarnadóttir og Þóra Árnadóttir.

Námskeið um landspendýr heppnaðist vel
Námskeiðið sem haldið var dagana 18. - 20. júní 2009 heppnaðist einstaklega vel.  Þátttakendur voru tæplega fjörutíu.  Myndir sem teknar voru á námskeiðinu má sjá hér.  Á þriðja degi unnu þátttakendur að gerð verkefna fyrir grunn- og framhaldsskóla sem finna má hér.

Námskeið um landspendýr á Íslandi, 18. - 20. júní 2009
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á hvaða skólastigi sem þeir eru.  Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.  Umsóknarfrestur er til 22. maí 2009.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang formanns, johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Ný vefsíða Samlífs
Ný vefsíða félagsins leit dagsins ljós í maí 2009.  Ester Ýr Jónsdóttir hannaði vefsíðuna og hefur jafnframt umsjón með henni. 
Nýi vefurinn er enn í vinnslu en á meðan má nálgast upplýsingar á gamla vefnum hér.

Aðalfundur Samlífs fyrir árið 2009
Var haldinn á Veitingahúsinu Lækjarbrekku við Lækjargötu í Reykjavík laugardaginn 21. febrúar 2009, kl. 11.00.  Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf.  Samlíf bauð til hádegisverðar.  Myndir frá fundinum má sjá hér.



Samlíf - Samtök líffræðikennara  ·  Pósthólf 8282  ·  128 Reykjavík

Umsjón og hönnun: Ester Ýr Jónsdóttir
Síðast uppfært: 22. apríl 2011