|
|
Lög samtaka
líffræðikennara
1. Félagið heitir Samtök
líffræðikennara. Heimilisfang þess er í
Reykjavík.
2. Markmið samtakanna er að auka og bæta
kennslu í líffræði á öllum
skólastigum. Markmiði þessu hyggst félagið
ná:
- með því að
stuðla að bættum starfsskilyrðum þeirra sem
kenna líffræði.
- með því að
fylgjast með nýjungum í
líffræðikennslu og stuðla að því
að kennarar taki virkan þátt í að
móta kennsluna, inntak hennar og aðferðir.
- með því að
láta sig skipta menntun líffræðikennara og hafa
samskipti við þær stofnanir sem þá menntun
annast.
- með því að efla
tengsl við þá sem semja námskrár og
námsefni á vegum
Menntamálaráðuneytisins.
- með því að leita
tengsla við líffræðikennara erlendis, t.d. með
kynnisferðum.
- með því að efna
til ráðstefnuhalds, námskeiða og
útgáfustarfsemi.
- með samskiptum við
þá aðila utan skólans sem öðrum fremur
hafa áhrif á mótun heilbrigðra
lífshátta, betri umgengni við náttúru
landsins og skynsamlegri nýtingu hennar.
3.
Félagssvæði er landið allt.
4. Allir sem fást við
líffræðikennslu geta orðið félagsmenn.
Einnig skal stjórninni heimilt að taka inn í
félagið aðra sem um það sækja og
tengjast líffræðikennslu.
5. Stjórn félagsins skipa 5 menn,
formaður, gjaldkeri, ritari og tveir meðstjórnendur.
Einnig skulu kosnir
á aðalfundi tveir varamenn í stjórn. Ef
atkvæði falla jöfn skal varpa
hlutkesti.
6. Stjórnin getur sett nefndir til ýmissa
starfa og gengist fyrir stofnun deilda og/eða starfshópa
eftir þörfum.
7. Aðalfund skal halda árlega í upphafi
hvers árs. Á dagskrá skal vera:
a) skýrsla stjórnar
b) lagabreytingar
c) reikningar
d) kosning stjórnar
e) ákvörðun
félagsgjalda
f) önnur mál
8. Stjórnin getur boðað til aukafunda.
9. Lögum verður aðeins breytt á
aðalfundi. Tillögur um lagabreytingar skulu berast
stjórn eigi síðar en 1. janúar. Allar
tillögur um lagabreytingar skal kynna í fundarboði.
10. Verði samtökin leyst upp renna eignir
þess og skuldbindingar til Kennarasambands Íslands.
|
|