Samlíf - logo
Samlíf    Samtök líffræðikennara
Samlíf
Forsíða
Fréttir
Lög félagsins
Fréttabréf
Um félagið
Ýmislegt
Námskeið
Ráðstefna
Myndir
Krækjur
Orðalistar
Námsefni

Gerast félagi
Námskeið
Námskeið um lífeðlisfræði, 14. - 16. júní 2011
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á grunn- og framhaldsskólastigi.  Dagskrá námskeiðsins er enn í vinnsluÞetta er hugsað sem þriggja daga námskeið, þannig að á fyrsta degi verði fyrirlestrar, á öðrum degi verði verklegar æfingar. Þriðji dagurinn verði svo notaður til að búa til verkefni og verklýsingar fyrir verklegar æfingar í lífeðlisfræði. Verkefnin verða svo sett á heimasíðuna okkar  www.lifkennari.is þar sem þau verða öllum tiltæk. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2011.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang Esterar, esteryr(hjá)gmail.com.

„Erfðamengjaöldin: Framfarir í líffræði og mannerfðafræði“, 7. - 8. janúar 2011
Dagana 7. og 8. janúar 2011 verður haldin ráðstefna á vegum Samlífs sem ber yfirskriftina „Erfðamengjaöldin: Framfarir í líffræði og mannerfðafræði“.  Ráðstefnan verður samtvinnuð námskeiði og verður haldin í Öskju, húsi náttúrufræðinga við Háskóla Íslands.  Farið verður yfir helstu framfarir í erfðafræði og skyldum greinum.  Kennarar eru sérfræðingar við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ, Kerfislíffræðisetur HÍ, Landspítala og Íslenska erfðagreiningu.  Sjá nánar um viðburðinn hér.

Námskeið um fugla í nágrenni okkar
, 18. - 20. júní 2010
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á grunn- og framhaldsskólastigi.  Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.  Umsóknarfrestur er til 22. maí 2010.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang Jóhanns, johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Námskeið um landspendýr
á Íslandi, 18. - 20. júní 2009
Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á hvaða skólastigi sem þeir eru.  Dagskrá námskeiðsins má sjá hér.  Umsóknarfrestur er til 22. maí 2009.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang formanns, johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.



Samlíf - Samtök líffræðikennara  ·  Pósthólf 8282  ·  128 Reykjavík

Umsjón og hönnun: Ester Ýr Jónsdóttir
Síðast uppfært: 18. febrúar 2011