Samlíf - logo
Samlíf    Samtök líffræðikennara
Samlíf
Forsíða
Fréttir
Lög félagsins
Fréttabréf
Um félagið
Ýmislegt
Námskeið
Ráðstefna
Myndir
Krækjur
Orðalistar
Námsefni

Gerast félagi
Námskeið
Námskeið um landspendýr á Íslandi, 18. - 20. júní 2009
Sumarnámskeið Samlífs - samtaka líffræðikennara

Staður: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði.

Gert er ráð fyrir að fyrirlestrar taki um eina klukkustund, að þeim loknum gefst tími til umræðna.

1. dagur - Fimmtudagurinn 18. júní,
9.00 Skráning þátttakenda – kaffi
9.30 Refur: Páll Hersteinsson prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands
Umræður
11.00 Minkur: Róbert Arnar Stefánsson forstöðumaður Náttúrufræðistofu Vesturlands á Stykkishólmi
Umræður
12.30 -13.30 Hádegisverður
13.30 Hreindýr: Skarphéðinn G. Þórisson, Náttúrustofu Austurlands
Umræður
15.00 Mýs: Ester Rut Unnsteinsdóttir, Melrakkasetri Íslands, Súðavík
Umræður
16.30 Lok fyrsta dags


2. dagur - Föstudagurinn 19. júní 2009,
8.00 Morgunverður á Hótel Loftleiðum
9.00 Felt í Öskjuhlíð að skoða kanínur.
Leiðbeinandi: Guðbjörg Ásta Stefánsdóttir Framhaldsskóla Snæfellinga, Grundarfirði
12.00 Hádegisverður í Flensborgarskóla
13.30 Kanínur: Guðbjörg Ásta Stefánsdóttir Framhaldsskóla Snæfellinga, Grundarfirði
Umræður
15.00 Kaffi og lok annars dags


3. dagur Laugardagurinn 20. júní 2009 
10.00 Léttur morgunverður
10.30 Verkefnavinnsla - Hópavinna
Búin til verkefni sem þátttakendur geta farið með heim og unnið frekar. Verkefnin verða svo sett inn á heimasíðuna lifkennari.is  þar sem þau verða öllum opin.

12.00 Hádegismatur
13.00 Lokið við verkefni og þau kynnt
Um 14.30 Námskeiðslok


Umsjón: Jóhann Guðjónsson formaður Samlífs, johann@flensborg.is

Námskeiðskostnaður verður lítill (vonandi enginn).

Námskeiðið er ætlað öllum líffræðikennurum á hvaða skólastigi sem þeir eru. Umsóknarfrestur er til 22. maí 2009.  Fjöldi umsækjenda á þeim degi ræður því hvort námskeiðið verður haldið eður ei.  Hægt er að sækja um námskeiðið með því að senda póst á netfang formanns, johann@flensborg.is eða hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.




Samlíf - Samtök líffræðikennara  ·  Pósthólf 8282  ·  128 Reykjavík

Umsjón og hönnun: Ester Ýr Jónsdóttir
Síðast uppfært: 7. maí 2009