Boðað er til aðalfundar Samlífs laugardaginn 20. apríl kl. 14:00. Fundurinn fer fram á Litlubrekku í húsi bak við veitingahúsið Lækjarbrekku, Lækjargötu í Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Boðið verður upp á fræðsluerindi að kaffi loknu. Samlíf býður upp á kaffi, þeir sem óska að vera með (allir líffræðikennarar eru meira en velkomnir) eru beðnir um að senda formanni boð á netfangið: esteryr(hjá)gmail.com fyrir 15. apríl 2013 (vegna fjölda í kaffi).