Á Degi íslenskrar náttúru sendi Samlíf frá sér eftirfarandi ályktun:
Reykjavík, 16. september 2013
Til: Mennta- og menningarmálaráðherra
Efni: Ályktun um niðurskurð í raungreinum í framhaldsskólum
Samlíf, samtök líffræðikennara hvetja mennta- og menningarmálaráðherra eindregið til þess að gaumgæfa vel uppbyggingu í raungreinakennslu með áherslu á verklega kennslu til að tryggja að nemendur nái tilsettum hæfnimarkmiðum.
Áhyggjur eru af sívaxandi niðurskurði í skólakerfinu sem leiðir til stærri hópa. Stækkun í hópum bitnar á verklegri kennslu og þar með gæðum menntunar. Áhersla námskrár Mennta- og menningarmálaráðuneytis um hæfniviðmið er í andstöðu við stærri nemendahópa.
Mennta- og menningarmálaráðherra er einnig hvattur til að tryggja að ekki verði frekari niðurskurður í raungreinum í framhaldsskólum. Í námskrá (1999) fækkaði einingum úr 12 í 9 á bóknámsbrautum öðrum en náttúrufræðibraut. Á náttúrufræðibraut var einingum í raungreinum fækkað úr 36 í 21. Samræmist fækkun raungreinaeininga í framhaldskólum markmiðum um fjölgun nemenda í raungreina og tækninámi? Mikilvægt er að tryggja rými til að raungreinar (líffræði, efnafræði, eðlisfræði og jarðfræði) verði veigamikill hluti af námi í íslenskum framhaldsskólum.
Stjórn Samlífs – Samtaka líffræðikennara
Ester Ýr Jónsdóttir, formaður
Rúna Björk Smáradóttir, gjaldkeri
Hólmfríður Sigþórsdóttir, ritari
Arnar Pálsson, meðstjórnandi
Halla Bjarnadóttir, meðstjórnandi.Samrit sent:
Mennta- og menningarmálaráðherra
Aðstoðarmanni Mennta- og menningarmálaráðherra
Ráðuneytisstjóra Mennta- og menningarmálaráðuneytis
Gæðastjóra Mennta- og menningarmálaráðuneytis
Deildarstjóra Stefnumótunar- og þróunardeildar Mennta- og menningarmálaráðuneytis
Deildarstjóra Framhaldsskóladeildar Mennta- og menningarmálaráðuneytis