Samlíf hélt dagana 11. – 13. júní sitt árlega sumarnámskeið. Í ár fjallaði námskeiðið um örverufræði og var það haldið í húsakynnum Matís í samstarfi við starfsmenn þar og Örverufræðifélag Íslands. Námskeiðið var ætlað líffræðikennurum á hvaða skólastigi sem er.
Markmið námskeiðsins var að þátttakendur öðlist aukna þekkingu á örverum, eiginleikum þeirra og hlutverkum, kynnist helstu rannsóknum í örverufræði og sérstöðu þeirra hér á landi og geti miðlað þekkingu sinni áfram til nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi. Námskeiðið heppnaðist afar vel og fengum við til okkar úrval örverufræðinga landsins.